Mannauðs- og þróunarsvið
Mannauðs- og þróunarsvið er starfsfólki og stjórnendum til stuðnings og ráðgjafar, gætir hagsmuna þeirra og öryggis auk þess að styðja við vinnustaðamenningu og þróun hennar. Sviðið hefur umsjón með kjara- og mannauðsmálum, skjalastjórnun og gæðamálum á skrifstofu Alþingis í samráði við framkvæmdastjórn skrifstofunnar. Þá hefur sviðið umsjón með mönnun og ráðningum í samráði við stjórnendur ásamt því að sinna jafnréttis-, starfsþróunar- og velferðarmálum starfsfólks.Mannauðs- og þróunarsvið hefur jafnframt umsjón með launabókhaldi, skjalastjórnunar- og gæðakerfum skrifstofunnar ásamt skjalasafni Alþingis. Mannauðs- og þróunarsvið ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi jafnlaunakerfis skrifstofu Alþingis.
Starfsfólk mannauðs- og þróunarsviðs hefur aðsetur á 2. hæð Smiðju, Tjarnargötu 9.